Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins hefst á slaginu kl. 12:00 í dag og stendur til kl. 09:00 miðvikudaginn 20. mars. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag.

Hægt er að greiða atkvæði um samninginn í gegnum heimasíðu SGS eða á heimasíðum aðildarfélaganna. Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 miðvikudaginn 20. mars en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vel og nýta sinn atkvæðisrétt!

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og kjarasamninginn má finna á upplýsingasíðu um samninginn.